Borgir

Hópabókanir ExpressFerða:

Express ferðir gera tilboð í klæðskerasaumaðar ferðir fyrir allar tegundir hópa, fyrirtæki, stofnanir, klúbba, gönguhópa, skíðahópa, golfhópa og sjá um allt sem þarf til að gera ferðina sem mest spennandi. Flug, fjölbreytt gisting, skoðunarferðir, gönguferðir, veitingahús, íslenska sem erlenda fararstjórn og bara allt milli himins og jarðar.  Hafðu samband og þú verður ekki fyrir vonbrigðum í síma 5900100 eða info@expressferdir.is

Ferðir

Siggi-Hlo-5.JPG

Siggi Hlö í Köben 17. - 19. febrúar 2012

Skelltu þér til Köben í vetur og upplifðu höfuðborgina og allt sem hún hefur upp á að bjóða. Express ferðir í samstarfi við Prime, Paxal og íslenska tónlistarmenn, bjóða farþegum upp á Músíkpartý með sjálfum Sigga Hlö í Bryggen í Kaupmannahöfn 18. febrúar 2012.
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði aðeins kr. 54.900.-

Flaggor-utanfoer-nordatlantens-brygge-461.jpg

Friðriki Dór og Steindi Jr. í Köben 24. - 26. febrúar 2012

Skelltu þér til Köben í vetur og upplifðu höfuðborgina og allt sem hún hefur upp á að bjóða. Verslaðu á Strikinu, kíktu í Calsberg safnið njóttu góðs matar og skelltu þér á tónleika með uppáhalds hljómsveitinni þinni ásamt vinum og ættingjum í Kaupmannahöfn. Expressferðir í samstarfi við Prime, Paxal og íslenska tónlistarmenn bjóða farþegum upp á Músíkpartý með Friðriki Dór og Steinda Jr. í Bryggen í Kaupmannahöfn laugardaginn 26.febrúar 2012 kl. 21.
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði aðeins kr. 54.900.-


 

brighton_lanes.jpg

Brighton helgarferð 23. - 26.febrúar 2012

Að skreppa til Brighton yfir helgi er góður kostur, borgin aðeins í 30 mínútna fjarlægð frá Gatwick flugvelli. Gist verður á Hotel Travelodge Brighton Seafront sem er einfalt en mjög snyrtilegt hótel á besta stað í Brighton.  
Verð kr. 75.900 á mann í tvíbýli.



Brighton sea front.jpg

Brighton 29.mars - 1. apríl 2012

Það er gott að heimsækja Brighton heim en borgin verður sífellt vinsælli áfangastaður íslendinga enda einstaklega sjarmerandi borg á suðurströnd Bretlands.  Boðið er upp á gönguferð á föstudeginum með Kristni Péturssyni sem búsettur er í Brighton og þekkir alla króka og kima borgarinnar.
Verð á mann í tvíbýli með enskum morgunverði kr. 89.800.-


23_Hinweisschild.jpg

Páskaferð til Berlínar 2. - 9. apríl 2012

Vorið í Berlín.  Allt að vakna til lífsins og ljóssins þegar páskahátíðin gengur í garð.  Berlín mun skarta sínum fegursta vorljóma þegar farþegar Expressferða njóta hennar yfir hátíðarnar. Í þessari ferð verður sameinuð menning, listir, sögulegur fróðlegur, skoðunarferðir á mjög spennandi staði og afþreying af ýmsum toga. Íslensk fararstjórn.
Verð frá kr. 132.800

Barcelo Old Ship ext..jpg

Brighton 21. - 23.apríl 2012

Það er gott að heimsækja Brighton heim en borgin verður sífellt vinsælli áfangastaður íslendinga enda einstaklega sjarmerandi borg á suðurströnd Bretlands.  Boðið er upp á gönguferð á föstudeginum með Kristni Péturssyni sem búsettur er í Brighton og þekkir alla króka og kima borgarinnar.
Verð á mann í tvíbýli kr. 70.900.-

Félag Atvinnurekenda.jpg

Sjávarútvegssýning FA Brussel 23. - 26.apríl 2012

Félag Atvinnurekenda og Express Ferðir bjóða upp á flug í tengslum við Sjávarútvegssýninguna í Brussel.
Verð kr. 76.900.-   Keflavík - Brussel - Keflavík

Berlin planetarium.jpg

Vorferð til Berlínar 27. - 30. apríl 2012

Stórborgin Berlín skartar vorklæðum á þessum tíma.  Það ber öllum saman um það sem koma til borgarinnar að það sé stórkostleg upplifun að sjá allt í blóma og finna vorilminn í loftinu.  Express ferðir hafa sérhæft sig í ferðum til Berlínar og bjóða leiðsögn sérlega fróðra og skemmtilegra fararstjóra., sem fara með farþega á allar helstu söguslóðir borgarinnar bæði fyrr og nú.
Verð á mann í tvíbýli kr. 89.900.-

BOI-LOGO.gif

Bears on Ice í Köben 11.-13.maí 2012

Þann 12. maí n.k. ætlar BEARS ON ICE í samstarfi við Scandinavian Bear Events.com / BearAware að slá upp BEARS ON ICE partýi í Kaupmannahöfn. Boðið upp á gisingu í 2 nætur á The Square Hotel við Ráðhústorgið og einnig Wakeup Copenhagen Hotel.
Verð á mann í tvíbýli frá kr. 59.900.-

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.