Sérferðir

Ógleymanleg lífsreynsla á erlendri grundu

Ferðir

Siggi-Hlo-5.JPG

Siggi Hlö í Köben 17. - 19. febrúar 2012

Skelltu þér til Köben í vetur og upplifðu höfuðborgina og allt sem hún hefur upp á að bjóða. Express ferðir í samstarfi við Prime, Paxal og íslenska tónlistarmenn, bjóða farþegum upp á Músíkpartý með sjálfum Sigga Hlö í Bryggen í Kaupmannahöfn 18. febrúar 2012.
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði aðeins kr. 54.900.-

Flaggor-utanfoer-nordatlantens-brygge-461.jpg

Friðriki Dór og Steindi Jr. í Köben 24. - 26. febrúar 2012

Skelltu þér til Köben í vetur og upplifðu höfuðborgina og allt sem hún hefur upp á að bjóða. Verslaðu á Strikinu, kíktu í Calsberg safnið njóttu góðs matar og skelltu þér á tónleika með uppáhalds hljómsveitinni þinni ásamt vinum og ættingjum í Kaupmannahöfn. Expressferðir í samstarfi við Prime, Paxal og íslenska tónlistarmenn bjóða farþegum upp á Músíkpartý með Friðriki Dór og Steinda Jr. í Bryggen í Kaupmannahöfn laugardaginn 26.febrúar 2012 kl. 21.
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði aðeins kr. 54.900.-


 

brighton_lanes.jpg

Brighton helgarferð 23. - 26.febrúar 2012

Að skreppa til Brighton yfir helgi er góður kostur, borgin aðeins í 30 mínútna fjarlægð frá Gatwick flugvelli. Gist verður á Hotel Travelodge Brighton Seafront sem er einfalt en mjög snyrtilegt hótel á besta stað í Brighton.  
Verð kr. 75.900 á mann í tvíbýli.



Brighton sea front.jpg

Brighton 29.mars - 1. apríl 2012

Það er gott að heimsækja Brighton heim en borgin verður sífellt vinsælli áfangastaður íslendinga enda einstaklega sjarmerandi borg á suðurströnd Bretlands.  Boðið er upp á gönguferð á föstudeginum með Kristni Péturssyni sem búsettur er í Brighton og þekkir alla króka og kima borgarinnar.
Verð á mann í tvíbýli með enskum morgunverði kr. 89.800.-


23_Hinweisschild.jpg

Páskaferð til Berlínar 2. - 9. apríl 2012

Vorið í Berlín.  Allt að vakna til lífsins og ljóssins þegar páskahátíðin gengur í garð.  Berlín mun skarta sínum fegursta vorljóma þegar farþegar Expressferða njóta hennar yfir hátíðarnar. Í þessari ferð verður sameinuð menning, listir, sögulegur fróðlegur, skoðunarferðir á mjög spennandi staði og afþreying af ýmsum toga. Íslensk fararstjórn.
Verð frá kr. 132.800

Barcelo Old Ship ext..jpg

Brighton 21. - 23.apríl 2012

Það er gott að heimsækja Brighton heim en borgin verður sífellt vinsælli áfangastaður íslendinga enda einstaklega sjarmerandi borg á suðurströnd Bretlands.  Boðið er upp á gönguferð á föstudeginum með Kristni Péturssyni sem búsettur er í Brighton og þekkir alla króka og kima borgarinnar.
Verð á mann í tvíbýli kr. 70.900.-

Félag Atvinnurekenda.jpg

Sjávarútvegssýning FA Brussel 23. - 26.apríl 2012

Félag Atvinnurekenda og Express Ferðir bjóða upp á flug í tengslum við Sjávarútvegssýninguna í Brussel.
Verð kr. 76.900.-   Keflavík - Brussel - Keflavík

Berlin planetarium.jpg

Vorferð til Berlínar 27. - 30. apríl 2012

Stórborgin Berlín skartar vorklæðum á þessum tíma.  Það ber öllum saman um það sem koma til borgarinnar að það sé stórkostleg upplifun að sjá allt í blóma og finna vorilminn í loftinu.  Express ferðir hafa sérhæft sig í ferðum til Berlínar og bjóða leiðsögn sérlega fróðra og skemmtilegra fararstjóra., sem fara með farþega á allar helstu söguslóðir borgarinnar bæði fyrr og nú.
Verð á mann í tvíbýli kr. 89.900.-

BOI-LOGO.gif

Bears on Ice í Köben 11.-13.maí 2012

Þann 12. maí n.k. ætlar BEARS ON ICE í samstarfi við Scandinavian Bear Events.com / BearAware að slá upp BEARS ON ICE partýi í Kaupmannahöfn. Boðið upp á gisingu í 2 nætur á The Square Hotel við Ráðhústorgið og einnig Wakeup Copenhagen Hotel.
Verð á mann í tvíbýli frá kr. 59.900.-

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.