Skilmálar

  • Express Ferðir er löggild ferðaskrifstofa og ber tryggingar gagnvart viðskiptavinum sínum eins og lög gera ráð um.
  • Express Ferðir geta ekki ábyrgst óviðráðanlegar breytingar á ferðum sínum s.s. breytingar á flugtímum t.d. vegna seinkunnar og skyndilegar breytingar á tímasetningum atburða þeirra sem sóttir eru heim.
  • Auglýst verð innihalda öll gjöld og skatta nema annað sé greinilega tekið fram.
  • Auglýst verð geta hækkað komi til verulegrar verðbreytingar á flutningskostnaði, sköttum, gjöldum eða breytinga á gengi ISK gagnvart EUR eða USD frá kaupdegi ferðar. Verðbreytingar geta þannig tekið til: a. flutningskostnaðar, þ.m.t. eldsneytiskostnaðar, b. álögum, sköttum eða sérgreiðslum fyrir tiltekna þjónustu, svo sem lendingargjöldum eða gjöldum fyrir að fara um borð eða frá borði í höfnum og á flugvöllum, c. gengi því sem á við um hina tilteknu alferð. Kaupanda skal tilkynnt um verðbreytingar samstundis. Greint skal frá forsendum og útreikningi hækkunar í slíkri tilkynningu. Síðustu tuttugu daga fyrir brottfarardag munu verð ekki hækka.
  • Ef ferð er bókuð símleiðis eða á skrifstofu Express Ferða, leggst 3.900 kr. bókunargjald við auglýst verð ferðarinnar.
  • Hægt er að greiða fullnaðargreiðslu og staðfestingargreiðslu með greiðslukorti í gegnum síma eða á vef www.expressferdir.is. Einnig er hægt að millifæra inn á bankareikning Express Ferða. Upplýsingar í síma 5 900 100.
  • Fullnaðargreiðsla þarf að hafa borist Express Ferðum. mánuði fyrir auglýstan brottfarartíma. Staðfestingargjald er 20.000 kr.
  • Heimilt er að afturkalla farpöntun, án kostnaðar, sé það gert innan viku frá því að pöntun var gerð enda séu að lágmarki 5 vikur í brottför. Berist afpöntun síðar, en þó fjórum vikum fyrir brottför, áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að halda staðfestingargjaldinu eftir. Sé pöntun afturkölluð með minna en 28 daga en meira en 14 daga fyrirvara heldur ferðaskrifstofan eftir 50% af verði ferðarinnar. Berist afpöntun með skemmra en 14 daga fyrirvara á ferðaskrifstofan kröfu á 75% fargjaldsins, en sé fyrirvarinn aðeins fjórir virkir dagar eða skemmri er allt fargjaldið óafturkræft.
  • Í skipulögðum hópferðum munu Express Ferðir. sjá um pöntun og kaup á flugsætum. Í sambandi við ferðaskilmála IcelandExpress er viðskiptavinum samt bent á að kynna sér þá á heimasíðu þeirra http://www.icelandexpress.is/. Í sambandi við ferðaskilmála Icelandair er viðskiptavinum samt bent á að kynna sér þá á heimasíðu þeirra http://www.icelandair.is.
  • Ferðakaupandi ber sjálfur ábyrgð á því að mæta tímalega í skipulagðar ferðir á vegum Express Ferða. Bæði heima og erlendis.
  • Express Ferðir áskilja sér rétt að vísa fólki úr skipulögðum ferðum ef viðkomandi telst ekki ferðafær vegna óhóflegrar áfengis- og/eða lyfjaneyslu.
  • Express Ferðir geta útvegað staka miða á viðburði erlendis og í þeim tilfellum er krafist staðgreiðslu á viðkomandi miða eftir að staðfesting á afhendingu hefur borist. Miðar eru afhentir á hóteli viðkomandi kaupanda erlendis.
  • Miðar á íþróttakappleiki, tónleika eða aðra viðburði eru keyptir frá traustum aðilum á Englandi. Ekki er hægt að lofa fyrirfram ákveðnum svæðum nema að það sé skýrt tekið fram. Alla jafna eru útvegaðir miðar á svæði heimaliðs á íþróttakappleikjum. Það getur þó komið fyrir að miðar séu hjá útiliði. Ef þetta gerist er það vegna þess að mjög erfitt er að fá miða á leikinn. Express Ferðir geta ekki tekið ábyrgð á þeim svæðum sem miðar gilda á. Miðaverð ræðst af eftirspurn og geta breyst. Breyting tekur þó ekki gildi nema að slík breyting sé skýrt tekin fram á vef Express Ferða. Í flestum tilvikum sitja þeir saman sem ferðast saman. Í einhverjum tilvikum getur það komið fyrir að miðar fáist ekki nógu margir saman. Þá er ferðahópnum skipt niður en afar sjaldgæft er að menn sitji stakir.
  • Vinsamlega athugið að ef greitt er með kreditkortum þá fá korthafar yfirleitt einhverskonar tryggingar frá viðeigandi kortafyrirtæki. Kynnið ykkur skilmála kortafyrirtækja hvað þetta varðar.
  • Hægt er að kaupa ferðatryggingar hjá tryggingafélögum sem ná yfir ferðalög erlendis og ferðarof. Við hvetjum alla sem ferðast að kynna sér þennan möguleika.
  • Express Ferðir bjóða forfallatryggingu sem kostar 4.000 kr. pr. einstakling. Forfallatryggingin greiðir andvirði ferðar ef viðkomandi aðili kemst ekki í hana vegna eftirfarandi ástæðna: 1. Viðkomandi verður fyrir alvarlegu slysi eða veikindum, staðfest af lækni, sem aftra því að viðkomandi sé ferðafær. 2. Andlát, alvarlegt slys eða veikindi maka, foreldra, barna, tengdabarna eða systkina viðkomandi aðila. 3. Eignatjón á heimili eða fyrirtæki í eigu viðkomandi aðila, sem verður að teljast verulegt og er staðfest með lögregluskýrslu. Ofangreind atvik verða til þess að forfallatrygging viðkomandi aðila tekur gildi og verður allur ferðakostnaður greiddur til baka að undanskildum forfallatryggingunni sjálfri og öllum kostnaði sem fellur til vegna lántöku ef slíkt á við.
  • Forfallatryggingu verður að greiða sama dag og ferð er bókuð.
  • Express Ferðir gera fyrirvara um innsláttar- og prentvillur á útgefnu kynningarefni hvort sem það er á pappír eða á vefnum.
  • Ef nánari upplýsinga er þörf er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóst á info@expressferdir.is eða í síma 5 900 100.
  • Express ferðir áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum fyrirvaralaust.

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.