Ferð

Golf: La Sella - 9 dagar, 14. - 23.okt. 2010

14. október 2010 til 23. október 2010

La Sella

Fararstjóri er Björn Eysteinsson

Golfvöllurinn, er ein skærasta perla golfvalla á Costa Blanca svæðinu á Spáni. Hann er í dag orðinn 27 holu völlur, hannaður af hinum heimsfræga kylfingu José Maria Olazabal.  La Sella hefur náð miklum vinsældum, jafnt meðal bestu kylfinga Spánar, sem og kylfinga annarra þjóða. Þeir kylfingar sem heimsækja La Sella geta spilað mikið golf og notið góðrar hönnunar og frábærrar umhirðu starfsmanna á La Sella. Vinalegt viðmót starfsmanna golfklúbbsins og öll þjónusta hefur alltaf verið til mikillar fyrirmyndar á La Sella. Golfbílar, sem kosta farþega Express ferða aðeina 15 Evrur, eru allir nýir rafbílar og útbúnir með kæliboxum.  Golfkerrur eru fríar fyrir golffarþega Express ferða og einnig æfingaboltar.

Gistingin á La Sella er af bestu gerð, enda um að ræða 5* Marriott Hóteli, sem er rétt við golfvöllinn. Þar er í boði helstu þægindi og dekur, sem gott hótel getur státað sig af. Öll herbergi eru með svölum og eru vel útbúin húsgögnum og rúmum þannig að fólki líður jafn vel eða betur heldur en heima hjá sér. Hvert herbergi er með sjálfstæðum hitastilli, sjónvarpi, 3 símum, minibar, stórum fataskápum, skrifborði, bólstruðum stólum í setukrók, straujárni og strauborði, hárþurrku, handklæðaofni, og þar er internet-aðgangur í boði án endurgjalds.  Á hótelinu eru 2 frábærir veitingastaðir, La Segaria og Brasserie Montgó ásamt lobby bar. Góður veitingastaður er einnig í klúbbhúsinu.  Stutt er með leigubíl að heimsækja nágrannabæina Denia og Javea.  
Vel innréttað og fallegt Spa er á hótelinu ásamt líkamsræktarsal. Hægt er að panta alls kyns nudd og heilsu-og snyrtimeðferð. 
Myndir af hóteli og uppl eru á: 

 

www.lasellagolf.com

Brottför er 14.október 2010 kl. 14:55 frá Keflavík.  Heimferð 23.október 2010, kl. 22:20 frá Alicante flugvelli.

Verð pr mann í tvíbýli  kr. 198.500.-,

                             
Innifalið, flug með sköttum og frítt fyrir golfsettið, ótakmarkað golf í 9 daga, gisting á 5* Marriott í 9 daga

m/hálfu fæði, fríar golfkerrur, fríir æfingaboltar, akstur til og frá flugvelli og fararstjórn.

Ef gist er í eins manns herbergi, þá þarf að greiða aukalega kr. 38.900.—

Erlendur hluti pakkaverðs miðast gengi evru 6. júlí 2010                                                

 

 

Myndir

alcmc_home_87k.jpg
alcmc_phototour65.jpg
La_Sella_Golf_völlur og hotel.jpg
La_Sella_Golf_völlur.jpg
photo_40-golf.jpg
photo_54-habitaciones.jpg
photo_64-hotel.jpg
photo_70-hotel.jpg
photo_95-spa.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

  • Forfallagjald / Alicante golf
Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.