Barcelona þykir ein fegursta borg Evrópu og hefur alveg ótrúlegt aðdráttarafl fyrir gesti og gangandi. Borgin hefur upp á að bjóða einstakar byggingar og frægastar eru að sjálfsögðu byggingar hönnnuðarins Gaudi. Barcelona er rómuð sælkeraborg og eru veitingastaðirnir við Olympíuhöfnina frægir fyrir sjávarrétti. Þú getur einnig valið spennandi nútíma veitingastaði með "nouvelle cusine" eða gamla heillandi staði í gmala hverfinu frá 13. öld, Barrio Gotico. Mikið menningarlíf er í borginni enda hafa margir frægustu listamenn fæðst og starfað í Barcelona eins og Míró og Picasso. Mikið er um listasöfn og má nefna Picasso safnið sem engin listunnandi má láta fram hjá sér fara en þar gefur að líta þróun listaverka Picassos. Nýlistasafnið - MACBA er nýjasta afrek hins heimsfræga arkitekts Richard Meyers. Safnið var reist í miðju Raval-hverfinu og hýsir nýstárlegar sýningar nútímalistamanna. Einnig er ómissandi að líta við á breiðgötunni Parallel þar sem flest leikhús og tónleikasalir borgarinnar eru. Í Pueblo Español á Montjuïc-fjalli eru flamenkósýningar og ýmsar aðrar uppákomur. Fyrir bókmenntaáhugafólk er einstaklega áhugavert að þræða slóðir "Skugga vindsins" í gamla bænum. Maður sér ekki víða ríkarar mannlíf en á hinni frægu Römblu. Í borginni er mjög gott að versla og eru stórglæsilegar verslanir að finna á breiðgötunni Diagonal einnig er gaman að rölta á milli smáverslana á Barrio Gottico hverfinu. Í kringum Katalóníutorgið eru stórverslanir, s.s. El Corte Inglés og svo ber að nefna hina glæsilegu Maremagnum, sem er byggð á uppfyllingu í miðri höfninni. Í ágúst er upplagt að kíkja niður á strönd og baða sig í sólinni en mjög skemmtilegt strandlíf er í Barcelona. Gist verður á Hotel Condado sem er mjög vel staðsett í miðborg Barcelona, stutt frá frægu byggingum Gaudi. Aðeins 15 - 20 mínútna gangur er niður að Römblunni og Katalóníutorginu. Þetta er 76 herbergja hótel og er loftkæling í öllum herbergjum einnig sími, sjónvarp, öryggishólf og internet-aðgangur. Verð á mann í tvíbýli kr. 92.900.- Aukagjald vegna einbýlis er kr. 57.000.- Innfalið í verði: Flug með sköttum, gisting með morgunverðarhlaðborði á Hotel Condado í 7 nætur. Ath. farþegar koma sér sjálfir milli flugvallar og hótels.