Ferð

Borgir: Wagner helgi í Berlín 12.2 - 15.2.2010

                        WAGNER HELGI Í BERLÍN 12-15. FEBRÚAR.

Expressferðir hafa í samvinnu við Wagner félagið á Islandi sett upp ferð svo allir unnendur Wagners tónlistar ættu kost á að sjá og heyra sjálfan stórsöngvarann Kristin Sigmundsson í einni frægustu óperu Wagners Lohengrin, sem er flutt í Deutsche Oper á BismarckstraBe laugardaginn 13. febrúar.
Hér er tengill á Lohengrin.
http://www.deutscheoperberlin.de/?page=spielplandetail&id_event_cluster=72183

Ekki nóg með það heldur syngur Kristinn Sigmundsson í Meistarasöngvurunum á sunnudagskvöldið 14. febrúar á Valentínusar deginum svo  þessi helgi er sannkölluð “veisla” fyrir óperuunnendur.
Hér er tengill á Meistersinger.
http://www.deutscheoperberlin.de/?page=spielplandetail&id_event_date=229118

Gist verður á Leonardo Hotel Berlin sem er í göngufæri frá Deutsche Opera Berlin og stendur við aðra mestu verslunargötu Berlínarborgar.  Auk þess að fara á þessar stórkostlegu óperur stendur farþegum til boða að fara í skoðunarferð um borgina undir leiðsögn Lilju Hilmarsdóttur, sem gjörþekkir borgina.  Sú ferð stendur yfir í fjórar klukkustundir og allt það markverðasta skoðað. Þessi ferð kostar 40 Evrur og greiðist hjá fararstjóra.

Expressferðir geta verið farþegum innan handar að útvega miða á báðar óperurnar.

Verð á mann í tvíbýli er 79.900 og innifalið í verði er flug með sköttum, gisting á  Leonardo Hotel Berlin með morgunverði og íslenskri leiðsögn.

Aukagjald fyrir einbýli kr. 18.600

Myndir

Leonardo Berlin-Lobby2.jpg
Leonardo Berlin-Bar.jpg
Leonardo dbl room.jpg
Brandenborgarhliðið.jpg
nozip_4822_470_1_400.jpg
Parlament.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

    Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
    Heildarverð fyrir alla farþega:0

    Áfangastaður / Ferð

    Póstlistinn

    Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.