Ferð

Aðventan í Köben á Radisson Blu 26. - 29.nóvember 2010

Aðventan í Kaupmannahöfn og gist á Radisson Blu Skandinavia Hotel.

Hvernig líst þér á að upplifa alvöru jólastemmningu?  Löng helgi í Kaupmannahöfn er alveg tilvalin leið til að komast í rétta jólaskapið.

Þú getur sameinað skemmtun, afslöppun og verslað jólagjafirnar.  Á þessum árstíma iðar Kaupmannahöfn hreinlega af lífi og jólaandinn svífur yfir borginni allri.  Tivoli í Kaupmannahöfn er í glæsilegum jólabúningi og er það einstök upplifun að ganga þar um og kíkja inn í öll litlu húsin þar sem boðið er upp á alls kyns skemmtilegan varning.

Gist er á Radisson Blu Skandinavia Hotel  þar sem útsýnið yfir borgina er einstakt. Hótelið stendur við Amager Boulevard í miðborg Kaupmannahafnar og í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Tívolíinu, Strikinu og öllum helstu gullmolum borgarinnar.  Herbergin eru rúmgóð, frí internet tenging og baðkar á öllum herbergjum. Morgunverður er innifalinn á hótelinu. Allir hótelgestir frá frían aðgang að líkamsrækt hótelsins. Á hótelinu eru 4 mjög vinsæl veitingahús og má þar nefna Mamas & Papas sem er ítalsk/amerískur staður, Restaurant Kyoto er japanskur, The Blue Elephant sem er tælenskur að ógleymdum veitingastaðnum á 25. hæð, The Dining Room en þaðan er eitt besta útsýni yfir Kaupmannahöfn.

Julefrokost er frábær leið til að skapa rétta andrúmsloftið og tilvalið að fara í slíka veislu á föstudagskvöldinu á hótelinu, í Tivolíinu eða á öðrum stöðum borgarinnar . Julefrokost að kveldi eða í hádegi er hefðbundin dönsk máltíð og ekki hægt að bera saman við íslenska hlaðborðið, þar sem öllu er tjaldað fram. Maturinn samanstendur í grunninn af síld, rúgbrauði, rauðsprettu, önd og svínabógi, en ofan á þetta bætist gott rauðvín, jafnvel flöskubjór og svo snafs.

Ferðaáætlun
Flogið til Kaupmannahafnar föstudaginn 26. nóvember kl. 07:00 frá Keflavík.
Farþegar skrá sig inn á Radisson Blu Skandinavia Hotel.
Laugardagur 27.nóvember, kl. 11:00. Boðið verður upp á gönguferð um miðborg Kaupmannahafnar með íslenskri fararstjórn þar sem endað verður á jólamarkaði. Ath. lágmarksþátttaka 20 manns í gönguferð. 
Flogið til Keflavíkur Mánudaginn 29. nóvember  kl. 11:55.

Verð á mann í tvíbýli kr. 76.900.-
Visamlegast bókið hjá skrifstofu Expressferða í síma 5900100

Innifalið í verði: Flug báðar leiðir m.sköttum, gisting í þrjár nætur á Radisson Blu Skandinavia Hotel með morgunverði. Gönguferð með íslenskum fararstjóra.
Ath. Farþegar koma sér sjálfir til og frá flugvelli.

 

Myndir

274658_REST_01_J.jpg
copenhagen-christmas-market-tivoli-gardens.jpg
ed_imgSNF04BELG_173238a.jpg
nyhavn-dortekrogh-visitdenmark.jpg
Radisson Blu LOBBY.jpg
Radisson Blu Skandinavia ext.jpg
casino.jpg
Bar 1.jpg
274658_ROOM_02_J.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

    Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
    Heildarverð fyrir alla farþega:0

    Áfangastaður / Ferð

    Póstlistinn

    Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.