Íslenskur fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir Ferð til Berlínar er engu lík. Berlín er að verða ein vinsælasta stórborg Evrópu enda hefur hún upp á mikið að bjóða.Einhver skemmtilegasti tími ársins í Berlín eru litríkir haustdagar þegar litbrigðin eru einstaklega falleg.Haustferðir okkar njóta sívaxandi vinsælda og veður er yfirleitt mjög gott á þessum tíma um 10-15 stiga hiti. Raunar finnur maður allt í Berlín. Stórkostlegar byggingar frá stórveldistímum kjörfurstanna og Bismarcks kanslara. Einnig er upplifun að sjá alla nýju byggingarnar sem hafa risið upp á mettíma eftir fall múrsins sem gera það að verkum, að Berlín er orðin eins konar Mekka arkitekta um allan heim. Þar má m.a. nefna hið fræga Potsdsamer Platz sem og allar nýju stjórnarráðsbyggingarnar enda var Berlín frá 1989 og fram til 2003 stærsta byggingarsvæði heims. Eftir fall múrsins hefur borgin gjörbreytt um svip, orðin lífleg menningarborg þar sem er pláss fyrir alla hvaðan sem þeir koma og hvað sem þeir gera. Einstaklega vinaleg og öllum líður vel í faðmi hennar. Það er ómetanlegt að kynnast þessari viðfeðmu borg með þessa miklu sögu undir leiðsögn Lilju Himarsdóttur sem gjörþekkir borgina, en hún miðlar farþegum á einstaklega skemmtilegan og fróðlegan hátt. Laugardagur 18. september. Lagt af stað kl 10:00 í 4 klukkustunda skoðunarferð um borgina þar sem allt það markverðasta er skoðað. Lilja Hilmarsdóttirl fararstjóri segir frá stöðum ,byggingum ,mannlífi og ekki síst hvernig er lífið í Berlín í dag eftir að frelsið hefur tekið völdin. Sunnudagur 19. september.
Gönguferðina tekur Eirík Sördal fararstjóri og lagt verður af stað í gönguferðina kl. 12:00 um hina huldu heima austur Berlínar. Það má enginn missa af þessari stórskemmtilegu ferð.
Farið á gamla a-þýska krá “Deponie” þar sem menn fá sér hressingu. Komið við á kaffihúsum.
Gist er á Leonardo Hotel á WilmersdorferstraBe í vestur hluta borgarinnar. Þetta er mjög gott 3* hótel á góðum stað, t.d. steinsnar frá Þýsku Óperunni. Verð á mann kr. 79.900. Aukagjald vegna einbýlis er kr. 18.000. Innifalið í verði: Flug með sköttum, gisting með morgunverði á Leonardo Hotel í þrjár nætur og íslensk fararstjórn. Ekki innifalið í verði: Akstur til og frá fugvelli og skoðunarferðir.