Ferð

Aðventuferð til Berlínar 3. - 6.desember 2010UPPSELT

Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir

Hver vill ekki fara til Berlínar, þegar jólaljósin ljóma og borgin skartar sínum fegurstu jólaskreytingum fyrir nú utan yndislega jólamarkaði út um alla borg. Express ferðir hafa farið nokkrar aðventuferðir til Berlínar við fádæma lof farþega sinna.  Fáar borgir eru eins jólalegar og höfuðborgin. 

Á jólamörkuðunum má finna fjölmargt, sem gleður augað og minnir á jólahátíðina og er líka margt sem er á góðu verði. Enda Berlín þekkt fyrir það að vera ódýr borg.  Í öllum tónlistarhúsum borgarinnar eru jólatónleikar og þar er svo sannarlega eitthvað fyrir alla. 

Uppselt er á Park Inn hótelið en við getum boðið örfá herbergi á glæsihótelinu Leonardo Royal Hotel **** sem er einnig rétt við Alexanderplatz eins og hið vinsæla hótel Park Inn.  Á Alexanderplatz er jólamarkaður, fyrir nú utan að aðal verslunarmiðstöð Berlínar er örstutt frá. 

Boðið er upp á skoðunarferð með áætlunarbíl á laugardeginum í 4 klukkustundir.  Þetta er ferð sem enginn má missa af.  Þarna er sögu Berlínar gerð góð skil bæði í nútíð og þátíð, sem og allt það markverðasta ´skoðað í borginni.

Sameiginlegt jólaborð hefst svo kl. 19:00 í veitingahúsinu Sachs, þar sem einkennandi þýskur jólamatur er á boðstólum.  Mjög spennandi. Verð 45 evrur á mann

Síðan er gönguferð á sunnudag og hefst hún kl. 11:00 og þá er m.a. farið á 2-3 jólamarkaði og sagt frá sögu og tilurð þessara jólamarkaða, en Þýskaland er eitthvert mesta jólaland í heimi þar sem aldagömul hefð er fyrir jólamörkuðum.

Mánudagur 6. desember.  Frjáls dagur til að líta í verslanir og ath með jólainnkaup á því góða verðlagi sem Berlín státar af.

Brottför kl. 18:00 frá hóteli og út á flugvöll.  Brottför flugs er kl. 20:30.

Verð á mann í tvíbýli á Park Inn. kr. 79.900.- Uppselt  
Verð má mann í tvíbýli á Leonardo Royal kr. 82.900.-

Innifalið í verði Flug með sköttum, gisting á 4* hoteli með morgunverði, gönguferð  og íslensk fararstjórn.
Hótel: Park Inn og Leonardo Royal

Aukagjald fyrir einbýli 19.700

Ath. Lágmarksþátttaka í skoðunarferðum er 20 manns.

Myndir

christmas Berlin.jpg
Christmas market 1.jpg
Christmas markets 2.jpg
berlin Kurfustendamm.jpg
leonardo_royal_hotel_berlin.jpg
leonardo_royal_hotel_berlin_lobby.jpg
leonardo_royal_hotel_berlin_restaurant.jpg
leonardo_royal_hotel_dbl room.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

  • Ekki nota! Akstur / Berlín (nota BERLIN)
  • Ekki nota! Akstur / Berlín (nota BERLIN)
  • Berlín - Skoðunarferð um borgina
  • Forfallagjald / Berlín
Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.