Ferð

Borgir: Hin óviðjafnanlega PARÍS 11. - 15.ágúst 2010- Uppselt!

11. ágúst 2010 til 15. ágúst 2010

París er ein af fallegustu og mest sjarmerandi borgum heims.  Express ferðir bjóða upp á einstaka ferð til Parísar 11. - 15.ágúst. Heilir 4 dagar í hinni töfrandi París, þar sem rómantíkin svífur yfir vötnum.  Fáar borgir hafa annað eins aðdráttarafl og París.  Hún er eilíf, þar er aldrei hægt að fá nóg.  Endalaust hægt að ganga um og uppgötva eitthvað nýtt og spennandi.  Fara á milli staða í neðanjarðarlestinni og skoða og fræðast, fyrir nú utan að stoppa á hinum heimsfrægu kaffihúsum í borginni en þar er hægt að sitja endalaust og alltaf ber eitthvað nýtt fyrir augu.

 

Flogið frá Keflavík miðvikudaginn 11.ágúst kl. 15:20.  

Hótelið Mercure Mont Martre er rétt við hina heimsfrægu Rauðu Myllu.

Á hótelinu eru 305 loftkæld herbergi og eru þau öll vel útbúin. Þau eru annað hvort með útsýni að Eiffel turninum eða hinni dásamlegu Sacre Coeur kirkju á Montmartre hæðinni.


Strax fyrsta morguninn þ.e. fimmtudagsmorgun er í boði að fara í skoðunarferð um borgina. Í ferðinni verður allt það markverðasta skoðað og ekið á mest spennandi staði Parísar.

 

Íslenskur leiðsögumaður gefur síðan farþegum allar upplýsingar sem þeir kjósa um alls konar viðburði og afþreyingu í borginni eins og áhugaverð söfn, tónleika, skoðunarferðir, gönguferðir, veitingahús, kaffihús o.fl.

Ath. lágmarksþátttaka er 20 manns varðandi varðandi íslenska fararstjórn.
 

Brottför frá hóteli er kl. 10 á sunnudagsmorgni og er flogið heim til Íslands kl. 13:30 


Þetta er einstök ferð og verð á mann í tvíbýli er kr. 99.900. 

Innifalið í verði er:  Flug með sköttum og öðrum greiðslum.  Gisting og morgunverðarhlaðborð á Hotel Mercure Montmartre 3*, mjög vel staðsett í miðborg Parísar.   

Þriggja klukkustunda leiðsögn í rútu með íslenskri fararstjórn,  lágmarksþátttaka 20 manns.

 

Aukagjald fyrir einbýli kr. 28.900

 

 

Myndir

13693dc46383b66a-mercure_montmartre_01[1].jpg
hotel-mercure-paris-montmartre-h_1865021vb.png
iStock_Versalir.jpg
moulin-rouge-paris.jpg
Paris___Eiffel_Tower_IV_WP_by_superjuju29.jpg
undir Effel turninum.jpg
moulin-rouge.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

  • Forfallagjald / Paris
  • Akstur / París
  • Akstur / París
Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.