Ferð

Montafon - Hotel Hubertusklause 12.-19.febrúar 2011

Montafon dalurinn í Austurríki. 

Fá skíðasvæði í Evrópu er jafn vinsæl og eftirsótt eins og Montafon dalurinn, sem teygir sig að Silvretta jöklunum og það er sama hvar maður er í dalnum alls staðar er aðstaðan jafn góð.

Expressferðir byrjuðu við góðan orðstír að bjóða skíðaferðir á þetta svæði s.l vetur og voru allir farþegar mjög ánægðir með svæðið, aðstöðuna og hótelin.  Því var ákveðið að halda áfram á sömu braut og bjóða fleiri hótel.   

Flogið til Friedrichshafen kl. 14:50 alla laugardaga og frá Friedrichshafen kl. 20:50 til Keflavíkur. 

Akstur frá flugvellinum til Montafon tekur um 90 mínútur og er ekki innifalinn í verði.

 

Montafon dalurinn teygir sig að Silvretta jöklunum og lyftur liggja upp frá litlu notalegu bæjunum til hinna vinsælu skíðasvæða, Golm, Silvretta Montafon Hochjoch og Silvretta Montafon Nova.  Þessi skíðasvæði eru í um 2.100 m. hæð.  Hægt er að skíða á milli þeirra og út um allan dalinn. 

 

Svæðin bjóða upp á aðstöðu og svæði fyrir alla, jafnt byrjendur, lengra komna og snillinga.

Á Montafon svæðinu eru samtals 26 lyftur, sem flytja farþega vítt og breitt um svæðið...Einnig er mikið af veitingahúsum í fjöllunum sem og fjallakofum með mat og drykk og hin fjörugu “Aprés ski” þar sem gaman er að setjast niður eftir vel heppnaða skíðaferð dagsins.


PARTENEN

Á þessu svæði er stærsta skíðasvæðið í öllum dalnum.  Hér fer fram skíðaiðkun á heimsmælikvarða.  Slík er aðstaðan á svæðinu Silvretta Montafon.  Breiðar brautir, sem hæfa hvaða skíðamanni sama yfir hvaða færni viðkomandi býr.  Í 2000 m hæð er besta gönguskíðabraut í landinu sama hvar er og einstaklega vinsæl.  Við rætur þessa stórkostlega fjallgarðs hvílir þorpið Partenen.

Hotel Hubertusklause 3* mjög gott fjölskylduhótel.  Stór og björt vel útbúin herbergi og maturinn er rómaður langt út fyrir svæðið.  Enda koma gestir og gangandi langt að til að borða á Hotel Hubertusklause.  Skíðavagn stoppar beint fyrir utan húsið og flytur í þær lyftur sem menn kjósa á öllu skíðasvæði dalsins.  Á Hubertusklause er ekki  gufubað, en við hliðina er Hotel Zerres þar sem gestir fá afnot af gufubaði og heitum potti.

Verð á mann í tvíbýli:

15. - 22.janúar kr. 139.000.-

12. - 19.febrúar kr 159.000.-

19. - 26.febrúar kr. 159.000.- 

Innfalið er: Flug með sköttum, gisting í 7 nætur með morgunverði og sælkera 5 rétta kvöldverði, frítt í skíðavagninn og afnot af gufu, potti og fl. á Hotel Zerres sem er hliðina.


 

 

 

Myndir

ski_1_big.jpg
montafon-apres-ski.jpg
Hotel Hubertusklause adalmynd.jpg
Hubertusklause dbl herb.jpg
Hubertusklause resturant.jpg
skiing.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

    Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
    Heildarverð fyrir alla farþega:0

    Áfangastaður / Ferð

    Póstlistinn

    Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.