Borgir: Páskaferð til Berlínar 29.mars-05.apríl 10 Uppselt
29. mars 2010 til 5. apríl 2010
29.mars – 5.apríl 2010 - Uppselt
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Express ferðir hafa undanfarin ár boðið upp á páskaferð til hinnar óviðjafnanlegu borgar Berlínar. Í boði er skemmtileg og fróðleg ferð með íslenskum fararstjóra, sem hefur mikla þekkingu og reynslu af að leiða farþega um borgina Berlín.
Það má enginn missa af að upplifa allt það sem borgin býður upp á. Síðan er boðið upp á skoðunarferð um Berlín sem og heils dags ferð til Dresden. Dresden er sannkölluð perla með öllum sínum glæsilegu barokk byggingum, sögu gleði og sorgar, uppbyggingu og hörmunga.
Flogið með áætlunarflugi Iceland Express mánudaginn 29. mars kl. 15:30 og við lendingu bíður áætlunarbíll og ekur farþegum á Hotel Park Inn, sem er í hjarta austur-Berlínar á Alexanderplatz, sem er eitt frægasta torg borgarinnar. Staðsetningin er frábær.
Þriðjudagur 30. mars hefst skoðunarferð um borgina kl. 10:00 og stendur yfir í 4. klukkustundir. Verð 35 evrur og greiðist hjá fararstjóra.
Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður hópsins á ekta Berlínarstað „Sophieneck“ Á matseðlinum er vínarsnitzel og rauðgrautur að hætti Berlínarbúa. Verð 20 evrur.
Miðvikudagur 31. mars. Frjáls dagur til að skoða sig um í borginni. Ef farþegar óska eftir að komast á tónleika um kvöldið þá getur fararstjóri aðstoðað með kaup á miðum.
Fimmtudagur 1.apríl. Heilsdags ferð til Dresden, lagt af stað kl. 8:30 og komið til baka tólf tímum síðar. Allt það markverðasta skoðað í borginni og einnig gefinn frjáls tími. Þetta er ferð sem enginn má missa af. Verð 50 evrur og greiðist hjá fararstjóra.
Föstudagur 2. apríl. Gönguferð um austur- Berlín. Þetta er mjög skemmtileg ganga og víða komið við í bakhúsum, görðum, gömlum húsum og saga og viðburðir tengdum þessum borgarhluta þau ár sem múrinn var við lýði verða rifjuð upp. Verð 10 evrur og greiðist hjá fararstjóra.
Laugardagur 3. apríl. Ef farþegar óska verður boðið upp á 6 klukkustunda ferð til Potsdam, sem er einkar áhugaverð borg. Þar hafa stórir atburðir gerst eins og skipting Evrópu eftir síðari heimsstyrjöldina. Einnig verður komið við í Wannsee, þar sem menn fundu upp útrýmingaraðferð Gyðinga. Verð 40 evrur og greiðist hjá fararstjóra.
Sunnudagur 4. apríl. Dagurinn hefst á páskamessu í Dómkirkjunni í Berlín og síðan er kaffi á nærliggjandi kaffihúsi. Síðan stendur farþegum til boða að sigla á ánni Spree.
Um kvöldið er sameiginleg páskamáltið á hótelinu innifalin í verði.
Mánudagur 5. apríl. Frjáls dagur. Upplagt að kíkja í búðir eða skoða eitthvað af söfnum borgarinnar. Brottför frá hóteli kl. 19:40 og flug til Íslands kl. 21:40.
Verð á mann í tvíbýli kr. 125.800.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 29.400.
Innifalið í verði er: Flug með sköttum, gisting á Park Inn 4* hóteli með morgunverðarhlaðborði og ein sameiginleg kvöldmáltíð. Íslensk fararstjórn allan tímann.
Ekki innifalið: Skoðunarferðir til Dresden, Potsdam og um borgina. Akstur til og frá flugvelli.
Myndir