Montafon - Alpenrose Hotel 5. - 12.febrúar
Montafon dalurinn í Austurríki.
Fá skíðasvæði í Evrópu er jafn vinsæl og eftirsótt eins og Montafon dalurinn, sem teygir sig að Silvretta jöklunum og það er sama hvar maður er í dalnum alls staðar er aðstaðan jafn góð.
Expressferðir byrjuðu við góðan orðstír að bjóða skíðaferðir á þetta svæði s.l vetur og voru allir farþegar mjög ánægðir með svæðið, aðstöðuna og hótelin. Því var ákveðið að halda áfram á sömu braut og bjóða fleiri hótel.
Flogið til Friedrichshafen kl. 14:50 alla laugardaga og frá Friedrichshafen kl. 20:50 til Keflavíkur.
Akstur frá flugvellinum til Montafon er ekki innifalinn í verði.
Montafon dalurinn teygir sig að Silvretta jöklunum og lyftur liggja upp frá litlu notalegu bæjunum til hinna vinsælu skíðasvæða, Golm, Silvretta Montafon Hochjoch og Silvretta Montafon Nova. Þessi skíðasvæði eru í um 2.100 m. hæð. Hægt er að skíða á milli þeirra og út um allan dalinn.
Svæðin bjóða upp á aðstöðu og svæði fyrir alla, jafnt byrjendur, lengra komna og snillinga.
Á Montafon svæðinu eru samtals 26 lyftur, sem flytja farþega vítt og breitt um svæðið...Einnig er mikið af veitingahúsum í fjöllunum sem og fjallakofum með mat og drykk og hin fjörugu “Aprés ski” þar sem gaman er að setjast niður eftir vel heppnaða skíðaferð dagsins.
ST. GALLENKIRCH
Mjög líflegur bær sem er í um 900 m yfir sjávarmáli, þar er fjörugt kvöldlíf, margir staðir með lifandi músik og skemmtilegt að setjast inn og fá sér drykk, einnig verslanir og alls konar þjónusta. Þetta þykir einn allra skemmtilegasti bærinn. Fyrir nú utan skíðasvæðið. Frá bænum ganga 3 lyftur upp í 2.000 m. hæð á svæðinu Silvretta Montafon Nova. Þar er alltaf nægur snjór og skemmtilegir veitingastaðir og mikið fjör á Aprés veitingastöðunum. Expressferðir bjóða upp á dvöl á tveimur hótelum í þessum frábæra bæ á eftirfarandi dagsetningum.
ALPENROSE, www.alpenrose-info.at
Þetta er einstaklega gott og snyrtilegt gisting með góðu veitingahúsi og þrjár flottar stjörnur. Herbergin eru stór og björt og lang flest með svölum. Það er stutt í skemmtilegar krár með lifandi tónlist, sem eru t.d. í Gashurn sem tekur 5.mínútur með strætisvagni, sem stoppar beint fyrir utan hótelið. Örstutt í lyftu upp á Silvretta Montafon, sem býður skíðamanninum endalausa möguleika á að svífa um brekkurnar. Einstök upplifun að mati allra þeirra fjölmörgu Íslendinga, sem hafa dvalið á Hótel Alpenrose.
Ver á mann í þríbýli kr. 135.900.- (2 fullorðnir og 1 barn)
Verð á mann í tvíbýli kr. 152.900.-
Verð á mann í einbýli kr. 167.900.-
Innifalið í verði: Flug með sköttum, gisting í sjö nætur með morgunverði og 4. rétta kvöldverði. Á Alpenrose er gufubað, hvildarherbergi, lítill pottur o.fl.
Myndir