Fyrst má nefna gönguferð um Kraká, Allt það markverðasta verður skoðað í þessari ferð. Þar má nefna gyðingahverfið Kazimierz, kastalsvæðið svonefnda sem var aðsetur pólskra konunga, en þess má geta að Kraká var áður fyrr á öldum höfuðborg Póllands og ber þess svo sannarlega merki í glæsilegum byggingum og minnismerkjum. Þar er m.a. markaðstorgið Rynek Glowny með hinu fallega markaðshúsi og fleiri byggingar. Einnig er í boði að aka út að einhverjum frægustu saltnámum sem um getur enda eru þær á minjaskrá Sameinuðu Þjóðanna. Þar eru ótrúleg listaverk höggvin í bergið og hreint út sagt ólýsanlegt að skoða þetta listaverk sem námurnar eru. Þriðja ferðin sem boðið er upp á eru fangabúðirnar Auschwitz frá heimsstyrjöldinni síðari en þær voru þekktar sem miðstöð útrýmingaherferðar Nasista. Allt sem tengist þessum búðum, sögu, frelsun og vistaverum verður skoðað í máli og myndum. Auschwitz lætur engan ósnortinn enda náði mannvonskan þar nýjum hæðum. Skoðunarferðir eru ekki innfaldar í verði en þær kosta á bilinu 30 til 40 evrur hver. Lágmarksþátttaka er 20 manns. Verð á mann í tvíbýli er kr. 114.900.- Aukagjald vegna einbýli kr. 24.000.- Innifalið í verði: Flug með sköttum, 4 nætur á Hotel Ibis Centrum með morgunverði, rútuferðir til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.