Ferð

Berlín og Dresden í jólafötunum 29. - 3.desember Uppselt!

VINSÆLUSTU JÓLAMARKAÐARNIR í BERLÍN OG DRESDEN:

 

Íslenskur fararstjóri:  Eirik Sördal

 

Expressferðir bjóða farþegum sínum í aðventuferð til tveggja yndislegra jólaborga.  Dvalið í Berlín en farið í eins dags jólaferð til hinnar óviðjafnanlegu Dresden.  Ekki einasta er borgin perla barokk listar í Evrópu og á langa sögu gleði og sorgar heldur er hún einhver fallegasta jólaborg landsins.  Það er  mál manna að hvergi séu glæsilegri, jólalegri og notalegri jólamarkaðir en þar.

Enda er jólakakan fræga Stollen upprunninn í borginni, ásamt ýmsu öðru “jólabakkelsi”.

 

Flogið út mánudaginn 29, nóvember til Berlínar kl. 15:00 og við komuna bíður áætlunarbíll farþega og flytur þá á Hótel Park Inn, sem er eitt af flaggskipum Expressferða.  Mjög vel staðsett á alexanderplatz, þar sem einn af jólamörkuðunum er.  Ríkulegur morgunverður og snyrtimennskan í fyrirrúmi.

 

Þriðjudagur 30. nóvember

Eftir morgunverð kl. 10:00 hefst skoðunarferð um borgina, sem stendur yfir í 4. klukkustundir.  Spennandi ferð sem gerir Berlín góð skil.

Um kvöldið verður farið á jólatónleika í Berlínar Fílharmoníunni fyrir þá sem hafa áhuga..

 

Miðvikudagur 1. desember.

Á fullveldisdegi okkar Íslendinga hefst dagurinn á heimsókn á helstu jólamarkaði Berlínar, sem eru áhugaverðir, spennandi og fullir af fallegum varningi, sem vert er að skoða betur.  Fararstjóri segir frá þýsku jólahaldi.

Um kvöldið er upplagt  að fara öll saman út að borða,  ekta þýskan jólamat.

 

Fimmtudagur 2. desember.

Morgunstund gefur gull í mund og lagt verður af stað kl. 8:00 til hinnar stórkostlegu Dresden.  Þar verður farið í gönguferð um miðborgina og saga borgarinnar rakin.  Gengið að helstu byggingum borgarinnar, að sjálfsögðu farið inn í Frúarkirkjuna, sem var endurbyggð fyrir nokkrum árum, eftir hina hörmulegu eyðileggingu í lok striðsins 1945.  Gönguferðin endar á jólamörkuðum, sem enginn gleymir eftir að hafa upplifað þá.

Farið til baka til Berlínar kl. 18:00 og komið til baka kl. 19:30.

 

Föstudagur 3. desember

Dagurinn algjörlega frjáls og það verður frábært að geta skoðað sig betur um á jólamörkuðunum og litið á jólagjafir, en verðlag í Berlín er mjög hagstætt.

Lagt af stað út á flugvöll kl. 18:00 en flug heim er kl. 21.00.

 

Verð á mann í tvíbýli er kr. 86.900.-

Innifalið er: Flug með sköttum, gisting á 4* hóteli í fjórar nætur með morgunverði og akstur fram og til baka frá flugvelli, (lágmarksþátttaka 20 manns). Íslensk fararstjórn.

 

Aukagjald í einbýli kr. 24.000

 

Ekki innfalið eru skoðunarferðir og lágmarksþátttaka er 20 manns.

Myndir

resden__night__market.jpg
Dresden jól.jpg
Dresden jolamarkaður.jpg
christmas Berlin.jpg
Christmas market 1.jpg
ParkInn resturant.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

  • Berlín - Skoðunarferð um borgina
  • Berlín - Heilsdagsferð til Dresden
  • Forfallagjald / Berlín
Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.