Ferð

5 nætur í Valencia 11. - 16.sept / Hætt við ferð

11. september 2010 til 16. september 2010

Fararstjóri: Þórarinn Sigurbergsson tónlistarkennari og klassískur gítarleikari.
 
Valencia er þriðja stæsta borg Spánar með um eina miljón íbúa.  Borgin er fjölbreytileg, skemmtileg blanda af gömlum og nýjum tíma og mannlífið er litskrúðugt.
Staðsetning hennar við Miðjarðarhafið í einu blómlegasta landbúnaðarhéraði Spánar gefur borginni sérlega lifandi og glaðlegt yfirbragð þar sem lífsnautnir, menning og saga blandast saman í nútíð og fortíð.  Express Ferðir hafa ákveðið að endurtaka einstaklega vel heppnaða borgarferð frá því í  september 2008,   sem var lofuð af þeim sem tóku þátt í henni og ekki síst var sérstakt lof borið á fararstjórann Þórarin Sigurbergsson, sem miðlaði farþegum ómældum fróðleik fyrir utan öll skemmtilegheitin.
 
Laugardagur 11. september
Flogið til Alicante kl. 14:55. Áætlunarbíll ekur farþegum beint til Valencia.  Ökuferðin tekur um það bil 2 klukkustundir.  Gist á Hotel Expo, sem er á besta stað í borginni.   Innifalinn morgunverður.  Það er mjög stutt í allt það markverðasta í borginni og ekki skemmir fyrir að á þaki hótelsins er frábær sundlaug og aðstaða til sólbaða. 
 
Sunnudagur 12.september
Í þessari hálfsdags skoðunarferð, sem hefst kl. 10:00 um Valenciu fáum við kjörið tækifæri til að öðlast á skjótan hátt góða yfirsýn yfir borgina. Skoðuð eru forn og ný mannvirki eins og Torres de Serrano borgarhliðið og Dómkirkjan frá 13. öld, Micalet turninn frá 14. öld, nautahringurinn frá 19. öld, ráðhús borgarinnar frá 1758, La Ciudad de las Artes y las Ciencias og fleiri merk nýleg mannvirki. Verð kr. 4500.- og hægt er að haka í reit hér fyrir neðan og greiða um leið og ferð er bókuð.

Á göngu um gamla miðbæinn sjáum við hinn gamla og fallega Silkimarkað, La Lonja, frá lokum 15. aldar, Miðbæjarmarkaðinn í mjög sérstakri byggingu í nýlistarstíl, Dómkirkjutorgið og nálgar götur og torg, m.a. hið sérstaka Plaza Redonda þar sem ýmiskonar verslun og sérstakt mannlíf á sér samastað.

Um kvöldið gefst farþegum tækifæri að borða saman á "týpískum" Valenciu stað sem Þórarinn fararstjóri velur.
 
Mánudagur 13. september
Frjáls dagur og nú gefst farþegum kostur á að skoða betur því sem þeir kynntust í skoðunarferðinni deginum áður sem og að njóta sólarinnar á þakinu.  Eins er mjög skemmtilegt að ganga um borgina og koma við á kaffihúsum og virða fyrir sér mannlífið. 
 
Þriðjudagur 14. september
Nú er í boði spennandi fjallaferð.
Ekið upp í fjöllin til hins kunna vínræktarbæjar Requena þar sem við heimsækjum víngerð Emilio Clemente. Frá Requena höldum við áleiðis til Alcoy með viðkomu í Xátiva þar sem skoðaðar eru rústir þekkts Márakastala  Síðan liggur leiðin til Alcoy þar sem góðar veitingar bíða okkar í mat og drykk á hinum kunna veitingastað El Bambú.  Það má enginn missa af þessari einstöku ferð. Skráning í þessa ferð er hjá fararstjóra í Valencia og greiðist í evrum.
 
Miðvikudagur 15. september
Dagurinn byrjar í La Ciudad de las Artes y las Ciencias, ”Borg lista og vísinda”. Þar er að finna stórgott náttúrufræði safn, Imax-bíó, veitingastaði o.fl. Umgjörðin er hreint stórbrotinn arkitekúr, verk hins kunna valencianska arkitekts Santiago Calatrava.  Síðan liggur leiðin að La Albufera stöðuvatninu í útjarðri borgarinnar þar sem við förum í hádegismat í litlu þorpi við vatnið, El Palmar. Þar gefst kostur á að smakka á dæmigerðri valencianskri matargerð.
 
Fimmtudagur 16. september
Tékkað út á hádegi og töskur geymdar í hóteli.  Upplagður dagur til ýmissa viðskiptahátta. Verðlag er mjög gott í Valencia, þannig að það er upplagt að líta aðeins í verslanir fram að brottför.
 
Brottför til Alicante flugvallar kl. 17:30. Flug heim kl. 22:20.
 
Verð á mann í tvíbýli kr. 98.700.

Aukagjald fyrir einbýli kr. 27.000.
 
Innifalið í verði: Flug með sköttum, gisting á 4* hóteli, Hotel Expo í miðborginni, mjög góðu hóteli með morgunverði og íslensk fararstjórn.
 
Ekki innifalið: Akstur til og frá flugvelli, skoðunarferðir  og sameiginlegir kvöldverðir. 

Akstur til og frá flugvelli kr. 4000 báðar ferðir (lágmark 20 manns).

Myndir

Expo 166_EHV-HAB-STANDARD-MATRIMONIO.jpg
Expo 166_IMG_9514.jpg
Expo 166_IMG_9945.jpg
166_EHV-PISCINA-2.jpg
3311844-Town_hall_of_Valencia_the_Popes_visit-Valencia.jpg
getGalImg.php.jpg
Micalet.jpg
valencia-playa.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

  • Forfallagjald / Alicante
  • Akstur frá Alicante flugvelli að hóteli.
  • Valencia - skoðunarferð um borgina
  • Akstur frá hóteli á Alicante flugvöll
Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.