Ferð

Lech - Hotel Felsenhof 12. - 19.febrúar 2011

SKIÐAFERÐ TIL LECH. 

Hvar er betra að svífa niður skíðabrekkur,  en í sjalfri skíðapardísinni LECH í Austurríki,  þar sem allir finna svæði og brekkur við sitt hæfi. Það skiptir engu máli hvort  um er að ræða byrjendur eða meistara í íþróttinni. Á fáum stöðum skemmta menn sér betur á skíðum og þar.  Enda er ekki furða að Lech er eitt vinsælasta og eftirsóttasta skíðasvæði í Evrópu og þó víðar væri leitað.  Það er t.d. sérstaklega gaman að taka einn dag í að skíða yfir í hinn vinsæla skíðabæ St. Anton og taka jafnvel strætisvagn til baka til Lech.

Þangað leitar þotulið Evrópu og ekki er útilokað að rekast á drottninga, kónga, prinsa og heimsfræga kvikmyndaleikara í næstu lyftu, krá og/eða bar. 

Það er um eins og hálftíma akstur frá áfangastað Iceland Express, Innsbruck og til Lech. Lech er einstaklega skemmtilegur bær með góðum verslunum, veitingastöðum og krám.  Það er mikið líf og fjör í bænum ekki síst eftir að allir koma niður úr brekknum um kl. 17:00 þá er alls staðar tónlist, Gluhwein o.fl.  Í Lech líður öllum vel og þar hefur verið íslenskur skíðakennari í 25 ár,  Úlrik Antonsson og segir það mikið um staðinn.

Express Ferðir bjóða upp á ferðir til Lech frá 29. janúar til 19. febrúar.  Gist verður á mjög góðu 4* hóteli rétt við miðbæinn,  Hotel Felsenhof.  Þar hafa margir Íslendingar gist og allir verið jafn ánægðir með aðbúnaðinn á hótelinu. Herbergin eru rúmgóð, með öllum útbúnaði og mjög gott gufubað er á hótelinu og hvíldaraðstaða. Örstutt í lyftu  bak við húsið og eins stoppar strætisvagn fyrir utan húsið og fer á aðallyftustöðina, þaðan sem leiðir liggja  til allra átta.  Hægt er að skíða alveg heim að hóteli að degi loknum. 
Hotel Felsenhof

Verð á mann í tvíbýli kr. 192.900.- 

Innifalið í verði er flug með sköttum,  gisting í 7 nætur á Hotel Felsenhof með morgunverði og þríréttuðum kvöldverði. Allur akstur milli skíðastaða er innifalinn.

Flogið til Friedrichshafen kl. 08:15 alla laugardaga og frá Friedrichshafen kl. 17:10 til Keflavíkur. 

Akstur til og frá flugvelli er ekki innifalinn. 

Aukagjald fyrir eins manns herbergi er kr. 31.500.- (Expressferðir sími 5900100)

Myndir

FelsenHof hotel.jpg
FelsenHof dbl herb.jpg
Felsenhof resturant.jpg
Felsenhof wellnessurlaub54.jpg
hotel-felsenhof03.jpg
Lech map.jpg
lech-apres_1208545c.jpg
lech-nightlife_1541326c.jpg
iStock_000006949239XSmall.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

    Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
    Heildarverð fyrir alla farþega:0

    Áfangastaður / Ferð

    Póstlistinn

    Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.