Besta borgin Berlín 22. - 25.okt Uppselt
Fararstjóri er Hjálmar Sveinsson
Sérstaklega góð samvinna hefur verið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og Expressferðum varðandi áhugaverðar og fróðlegar ferðir í tengslum við námskeið sem haldið verður í lok september undir einstakri leiðsögn Hjálmars Sveinssonar. Þessi ferð er ætluð öllu sama hvort þeir taki þátt í umræddu námskeiði eða ekki, enda er það einstök upplifun um að skoða Berlín með Hjálmari.
Ferð til Berlínar er engu lík. Berlín er ein allra vinsælasta borg Evrópu . Hjálmar mun á þessu námskeiði fjalla ítarlega um hið aldna Prússland og velt upp þeirri spurningu að gefnu tilefni, hvort verið sé að endurreisa hið gamla Prússland í austurhluta Þýskalands. Meira um námskeið hér.
Miðja valdsins í Evrópu færist í austurátt. Hin gamla höfuðborg Prússlands Berlín er orðin ein helsta miðstöð vísinda og lista og valds í áflunni. Á námskeiðinu verður einnig fjallað um hina merku og þversganakenndu sögu Prússlands, konungsríkis sem var stofnað 1701 og langt niður 1947. Fjallað verður um ríki sem hefur fengið þann dóm að hafa verið vagga hernaraðarhyggju, en var samt sem áður frjálslynt menningarríki, skjól upplýsingarstefnunnar og eitt fullkomnasta réttarríki álfunnar.
Sagt frá flautuleikaranum, heimspekingnum og herkonunginum Friðriki mikla og járnkanslaranum Bismarch, óheillakrákunni vilhjámi II og uppreisnarseggjunum Rósu Luxembourg og Karli Liebknecht.....sem og fleiru... Ferð sem enginn má missa af með hinum frábæra sögumanni Hjálmari Sveinssyni.
Ferðatilhögun er á þessa leið.
Flogið út föstudaginn 22. okt kl. 15:30.
Laugardagur 23. október. Skoðunarferð um borgina, sem stendur yfir í 4 klukkustundir og ekið verður vítt og breitt um Berlín og sagt frá staðháttum og stuðst við efni námskeiðsins.Verð ferðar 35 evrur á mann.
Farið út sameiginlega að borða á stórskemmtilegum stað Don Giovanni, sem er í göngufæri frá hótelinu. Verð fyrir matinn 25 evrur á mann.
Sunnudagur. 24. október. Potsdam var mjög mikilvæg borg í gamla Prússalandi. Ferð til Potsdam hefst kl 10:00 og stendur yfir í 6 klukkustundir. Einstaklega fróðleg enda gerðustu þar miklir atburðir í Mannkynssögunni svo sem eins og skipting Evrópu eftir síðari heimsstyrjöldina o.fl.. Verð ferðar 40 evrur.
Mánudagur 25. október. Farþegar þurfa losa herbergin um hádegisbil. Strax í kjölfar þess er í boði stórskemmtileg gönguferð með Hjálmari um austurhluta borgarinnar þar sem sagt er frá hlutum sem ekki þoldu dagsljósið þá. Verð 10 evrur.
Gist á Leonardo Berlín, WilmersdorferstraBe, mjög rómuðu hóteli á mjög góðum stað í borginni með ríkulegum morgunverði í þrjár nætur.
Verð á mann 79.900 í tvíbýli
Aukagjald vegna einbýli kr. 18.000.
Myndir