Haustferð til Kaupmannahafnar 1. - 4.okt.
Það er Íslendingum ávallt kærkomið að leggja leið sína til Kaupmannahafnar. Expressferðir bjóða upp á einkar hagstæða helgarferð til borgarinnar 1-4. október, þannig að farþegar geti dáðst að hinum undurfögru haustlitum sem prýða borgina og njóta nokkura daga í faðmi okkar fyrrverandi höfuðborgar.
Flogið að morgni föstudagsins 1. október og gist á hinu margrómaða Wake up hóteli, sem er vel staðsett, skammt frá Tívolí og aðaljárnbrautarstöðinni.
Steinsnar er Fisketorvet, sem er risastór verslunarmiðstöð ein sú stærsta í Kaupmannahöfn með fjölmarga veitingastaði af öllum stærðum og gerðum.
Íslandsbryggja er líka skammt frá þar sem eru veitingastaðir og þekkt “Kulturhus” þar sem eru tónlistarviðburðir, sýningar o.fl.
Laugardaginn 2. október eru minningartónleikar um Jimi Hendrix kl. 21:30 á “svarta demantinum” den sorte Diamant, eins má benda á að í konunglegu óperunni er verið að flytja Nabucco eftir Verdi.
Í hinni lifandi Kaupmannahöfn er sem sagt alltaf nóg við að vera og ekki skemmir að fá sér gönguferð með íslenskri leiðsögn um spennandi, áhugaverða staði, sem er innifalin í verði. Lágmarksþátttaka er 10 manns.
Verð á mann í þríbýli er kr. 65.800.-
Verð á mann í tvíbýli er kr. 66.800.-
Verð á mann í einbýli er kr. 82.800.-
Innifalið í verði er: Flug með sköttum, gisting með ríkulegum morgunverði og gönguferð um borgina.
Myndir