Montafon - Jufa fjölskylduparadís 26.feb.-5.mars
Montafon dalurinn í Austurríki.
Fá skíðasvæði í Evrópu er jafn vinsæl og eftirsótt eins og Montafon dalurinn, sem teygir sig að Silvretta jöklunum og það er sama hvar maður er í dalnum alls staðar er aðstaðan jafn góð.
Expressferðir byrjuðu við góðan orðstír að bjóða skíðaferðir á þetta svæði s.l vetur og voru allir farþegar mjög ánægðir með svæðið, aðstöðuna og hótelin. Því var ákveðið að halda áfram á sömu braut og bjóða fleiri hótel.
Flogið til Friedrichshafen kl. 14:50 alla laugardaga og frá Friedrichshafen kl. 20:50 til Keflavíkur.
Montafon dalurinn teygir sig að Silvretta jöklunum og lyftur liggja upp frá litlu notalegu bæjunum til hinna vinsælu skíðasvæða, Golm, Silvretta Montafon Hochjoch og Silvretta Montafon Nova. Þessi skíðasvæði eru í um 2.100 m. hæð. Hægt er að skíða á milli þeirra og út um allan dalinn.
Svæðin bjóða upp á aðstöðu og svæði fyrir alla, jafnt byrjendur, lengra komna og snillinga.
Á Montafon svæðinu eru samtals 26 lyftur, sem flytja farþega vítt og breitt um svæðið...Einnig er mikið af veitingahúsum í fjöllunum sem og fjallakofum með mat og drykk og hin fjörugu “Aprés ski” þar sem gaman er að setjast niður eftir vel heppnaða skíðaferð dagsins.
GANTSCHIER
Hótel JUFA www.jufa.at/montafon.php
Expressferðir bjóða upp á dvöl í splunku nýrri gisingu, JUFA Montafon, sem er mjög vel staðsett með skíðaiðkun í huga. Jufa Guesthouse er rétt við rætur Golm fjallgarðsins og stutt í lyftur. Hótelið er mjög fjölskylduvænt með leikherbergi fyrir börn, með gufubað, hvildarherbergi, tennis, íþróttasal, internet og ekki síst stór og björt herbergi fyrir tvo og fleiri. Góður kostur fyrir fjölskyldur af öllum stærðum og gerðum á einkar hagstæðu verði. Expressferðir mæla sérstaklega með þessu hóteli fyrir fjölskyldufólk. Jufa er Gantscher er rétt við bæinn SCHRUNS, sem er óhemju skemmtilegur bær með verslunum og allri þjónustu. Síðan í sumar er hann orðinn heimsfrægur fyrir það að spænska landsliðið dvaldi þar við æfingar fyrir heimsmeistarakeppnina í S-Afríku.
Dagsetningar sem í boði eru:
15. - 22. janúar, 22.- 29. janúar, 29.janúar - 5. febrúar, 5.- 12. febrúar, 19. – 26. febrúar.
Verð á mann í tvíbýli kr. 147.900.-
Verð á mann í fjölskylduherbergi fyrir tvo fullorðna og 1 barn* kr. 132.700.-
Verð á mann í fjölskylduherbergi fyrir tvo fullorðna og 2 börn * kr. 124.700.-
Verð á mann í fjölskylduherbergi fyrir tvo fullorðna og 3 börn * kr. 119.900.-
Verð á mann í fjölskylduherbergi fyrir tvo fullorðna og 4 börn * kr. 114.900.-
* börn á aldrinum 2. - 15 ára
Innifalið flug með sköttum, gisting í 7 nætur með morgunverði og mjög glæsilegum kvöldverði.
ATH. Innifalið í verðinu er skíðapassi fyrir alla sem eru undir 24. ára.
Myndir