Ferð

Besta borgin Berlín 5.-8.nóvember 2010

Íslenskur fararstjóri: Eirik Sördal

Ferð til Berlínar er engu lík.  Berlín er að verða ein vinsælasta stórborg Evrópu enda hefur hún upp á mikið að bjóða.

Raunar finnur maður allt í Berlín.  Stórkostlegar byggingar frá stórveldistímum kjörfurstanna og  Bismarcks kanslara.  Einnig er upplifun að sjá alla nýju byggingarnar sem hafa risið upp á mettíma eftir fall múrsins sem gera það að verkum,  að Berlín er orðin eins konar Mekka arkitekta um allan heim. Þar má m.a. nefna hið fræga Potsdsamer Platz sem og allar nýju stjórnarráðsbyggingarnar.  Enda var Berlín frá  1989 og fram til 2003 stærsta byggingarsvæði heims.

 

Eftir fall múrsins hefur borgin gjörbreytt um svip.  Orðin lífleg

menningarborg þar sem er pláss fyrir alla hvaðan sem þeir koma og hvað sem þeir gera.  Einstaklega vinaleg og öllum líður vel í faðmi hennar.

 

Það er ómetanlegt að kynnast þessari viðfeðmu borg með þessa miklu sögu undir leiðsögn Eirik Sördal sem gjörþekkir borgina og hann miðlar farþegum á einstaklega skemmtilegan og fróðlegan hátt.

Laugardagur 6. nóvember kl. 10:00.  Boðið upp á 4 klukkustunda skoðunarferð um borgina þar sem allt það markverðasta er skoðað. Eirik segir frá stöðum ,byggingum, mannlífi og ekki síst hvernig er lífið í Berlín í dag eftir að frelsið hefur tekið völdin.

Sunnudagur 7. nóvember.   Eirik leggur af stað í gönguferð kl. 12:00 um hina huldu heima austur Berlínar. Það má enginn missa af þessari stórskemmtilegu ferð með honum. Farið á gamla austur-þýska krá “Deponie” þar sem menn fá sér hressingu.  Komið við á kaffihúsum. (Bókanir teknar niður hjá fararstjóra í Berlín)

Gist er á Hotel NH Berlin Alexanderplatz  sem er 4* hótel í hjarta austur-Berlínar rétt við Alexanderplatz, sem er eitt frægasta torg borgarinnar.  Staðsetningin er mjög góð.
Ath. Park Inn hótel uppselt. 


Verð á mann í tvíbýli er kr. 74.500.

Innifalið í verði: Flug með sköttum, gisting með morgunverði á Hotel NH Berlin í þrjár nætur og íslensk fararstjórn.
 
Ekki innifalið í verði: Akstur fram og til baka frá flugvelli og skoðunarferðir. 

Myndir

Brandenborgarhliðið.jpg
iStock_000007131908XSmall.jpg
Hótel NH Berlin að utan.jpg
NH Berlin herbergi.jpg
NH Berlin Hótelafgreiðsla.jpg
NH Berlin morgunverðarsalur.jpg
NH Berlin restaurant.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

  • Forfallagjald / Berlín
  • Akstur / BERLIN hotel-flugv.
  • Berlín - Skoðunarferð um borgina
  • Akstur / BERLIN flugv-hotel
Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.