Golf: La Sella - 7 dagar 14. - 21.okt. 2010 - Uppselt!
La Sella
Golfvöllurinn, er ein skærasta perla
golfvalla á Costa Blanca svæðinu á Spáni. Hann er í dag orðinn 27 holu
völlur, hannaður af hinum heimsfræga kylfingi José Maria Olazabal. La Sella
hefur náð miklum vinsældum, jafnt meðal bestu kylfinga Spánar, sem og kylfinga
annarra þjóða. Þeir kylfingar sem heimsækja La Sella geta spilað mikið golf og
notið góðrar hönnunar og frábærrar umhirðu starfsmanna á La Sella. Vinalegt
viðmót starfsmanna golfklúbbsins og öll þjónusta hefur alltaf verið til mikillar
fyrirmyndar á La Sella. Golfbílar, sem kosta farþega Express ferða aðeina 15
Evrur, eru allir nýir rafbílar og útbúnir með kæliboxum. Golfkerrur eru fríar
fyrir golffarþega Express ferða og einnig æfingaboltar.
Gistingin á La Sella er af bestu gerð,
enda um að ræða 5* Marriott Hóteli, sem er rétt við golfvöllinn. Þar er
í boði helstu þægindi og dekur, sem gott hótel getur státað sig af. Öll herbergi
eru með svölum og eru vel útbúin húsgögnum og rúmum þannig að fólki líður jafn
vel eða betur heldur en heima hjá sér. Hvert herbergi er með sjálfstæðum
hitastilli, sjónvarpi, 3 símum, minibar, stórum fataskápum, skrifborði,
bólstruðum stólum í setukrók, straujárni og strauborði, hárþurrku,
handklæðaofni, og þar er internet-aðgangur í boði án endurgjalds. Á hótelinu
eru 2 frábærir veitingastaðir, La Segaria og Brasserie Montgó ásamt lobby bar.
Góður veitingastaður er einnig í klúbbhúsinu. Stutt er með leigubíl að
heimsækja nágrannabæina Denia og Javea.
Vel innréttað og fallegt Spa er á
hótelinu ásamt líkamsræktarsal. Hægt er að panta alls kyns nudd og heilsu-og
snyrtimeðferð. Myndir af hóteli og uppl eru á: www.lasellagolf.com
Brottför er kl. 14:55 frá Keflavík. Heimferð
kl. 22:20 frá Alicante.
Verð pr mann í tvíbýli kr.
173.800.-,
Innifalið, flug með sköttum og frítt fyrir golfsettið,
ótakmarkað golf í 7 daga, gisting á 5* Marriott í 7 daga m/hálfu fæði, fríar golfkerrur, fríir æfingaboltar,
akstur til og frá flugvelli og fararstjórn.
Ef gist er í eins manns herbergi, þá þarf að
greiða aukalega kr. 29.800.—
Myndir