Ferð

Sérferð: Sumar í Svartaskógi 21.-28.ágúst 2010

21. ágúst 2010 til 28. ágúst 2010

Fararstjóri:  Lilja Hilmarsdóttir


Express Ferðir bjóða enn á ný upp á hina stórkostlegu ferð Sumar í Svartaskógi.  Þetta er ein af vinsælustu ferðum Expressferða.  Enda ekki nema von því aðbúnaður farþega er með því besta sem völ er á. 

Það er samdóma álit þeirra Íslendinga sem notið hafa gestrisni  Sauter fjölskyldunnar á Hotel Baren   í mat, drykk og umönnun allri,  að hún sé til sannkallaðrar fyrirmyndar.

 

Á Hótel Baren er allt innifalið,  ríkulegur morgunverður, léttir réttir um eftirmiðdaginn og fjögurra rétta kvöldverður. 

Á meðan á dvölinni stendur er boðið upp á mjög spennandi og fróðlegar skoðunarferðir, sem stendur farþegum til boða ef þeir vilja.

 

Þetta er ferð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara og á frábæru verði undir leiðsögn Lilju Hilmarsdóttur, sem þekkir þetta svæði flestum betur og er marg reyndur fararstjóri.

 

Laugardagur 21. ágúst.  Flogið kl 07:00 frá Keflavík til Basel og lending þar er kl. 12:30.  Þar bíður áætlunarbíll og flytur farþega á Hótel Baren í Titisee og tekur sú ferð um 40. mínútur.  Boðið upp á freyðivín fyrir matinn af Sauter fjölskyldunni og allir boðnir velkomnir. 

 

Sunnudagur 22. ágúst.  Eftir morgunverð kl. 10:00 er í boði sérstaklega skemmtileg ferð um Svartaskóg þar sem farþegar kynnast lífi Skógarbúa fyrr og nú og þetta er mjög áhugavert.  Stendur yfir í 6-7 tíma.  Verð fyrir skoðunarferðina er 40 evrur.

 

Mánudagur 23. ágúst.   Boðið upp á skemmtilega gönguferð sem tekur um tvær klukkustundir en er mjög létt.  Annars upplagt að njóta bæjarins og það sem hann hefur upp á að bjóða.  Eftir kvöldverð á hóteli verður spilað Bingó og veglegir vinningar í boði.

 

Þriðjudagur 24.ágúst.     Heils dags ferð til Frakklands.  Ekið til Strassbourg og þar er miðbærinn skoðaður með hinni frægu dómkirkju.  Þaðan haldið til Kaysersberg þar sem farþegar skoða fæðingarhús hins fræga læknis og mannvinar Alberts Schweitzer, sem nú er orðið stór merkilegt safn. Síðan er víngatan fræga ekin í gegnum öll yndislegu litlu þorpin og síðan stoppað í litla vínþorpinu Riquewehr.  Síðan er síðasti áfangastaðurinn borgin Colmar. Þetta er dásamleg ferð þar sem ekið er um öll fegurstu svæði vínhéraðsins Elsass.  Verð fyrir skoðunarferðina er 50 Evrur

 

 

Miðvikudagur 25. ágúst.  Eftir morgunverð verður farið með lestinni til stærstu borgar Svartaskógar sem er ein af elstu borgum landsin sjálf Freiburg.  Fararstjóri fer í gönguferð um miðborgina og bendir á markverðustu byggingar og segir frá borginni.  Siðan gefinn frjáls tími til að skoða söfn, líta í búðir og/eða setjast á kaffihús á aðaltorgi borgarinnar Munsterplatz og virða fyrir sér flóru mannlífsins.
 

Fimmtudagur 26. ágúst .Lagt af stað kl. 8:00 á blómaeyjuna Mainau. Eyjan er bara einstök Paradís..   Eftir það er ekið til Schaffhausen í Sviss.    Þar eru hinir undurfögru Rínarfossar.  Á leið þangað ökum við í gegnum suðurhluta Svartaskógar sem er gullfalleg leið og margt sem fyrir augu ber.  Verð 45 evrur. Um kvöldið er ball á hótelinu.

 

Föstudagur 27. ágúst.  Frjáls dagur.  Fararstjóri fer í gönguferð upp á lítið fjall við bæinn Titisee ef einhverjir vilja fylgja með og þaðan er gengið yfir í bæinn Neustadt.  Skemmtileg ganga og mikið að sjá.  Ekki erfið.  

 

Laugardagur 28. ágúst.  Lagt af stað kl. 9:00 út á flugvöll í Basel í Sviss.  Flug heim til Íslands kl. 13:30 og lending að staðartíma kl. 15:30.

 

 

Verð kr. 159.300 á mann í tvíbýli. 
Aukagjald vegna einbýli kr. 38.500.-

Innifalið í verði,  flug með sköttum,  akstur til og frá flugvelli, gisting á 4* hóteli með ríkulegum morgunverði,   eftirmiðdagssnarl og fjórrettaður kvöldmatur  á hverju kvöldi.   
Íslensk fararstjórn allan tímann.

 

Ekki innifalið:  Skoðunarferðir og aðgangur að söfnum.

 

Lágmarksþátttaka í skoðunarferðum er 20 manns.

 

Myndir

2008-07080002%20titi.jpg
2008-07090021%20titi.jpg
baeren3.jpg
Svartiskogur Lilja hopur.jpg
3032870465_bdb42846a1.jpg
10720826.jpg

Flug

Hótel (Veljið minnst 1 hótel)

Önnur þjónusta

  • Forfallagjald / Basel
Veldu fjölda farþega hér fyrir neðan og smelltu svo á Endurreikna verð.
Heildarverð fyrir alla farþega:0

Áfangastaður / Ferð

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir, tilboð og skemmtilegar fréttir.