Aðventuferð til Berlínar 26 - 29. nóvember Uppselt
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Hver vill ekki fara til Berlínar, þegar jólaljósin ljóma og borgin skartar sínum fegurstu jólaskreytingum fyrir nú utan yndislega jólamarkaði út um alla borg. Express ferðir hafa farið nokkrar aðventuferðir til Berlínar við fádæma lof farþega sinna. Fáar borgir eru eins jólalegar og höfuðborgin.
Á jólamörkuðunum má finna fjölmargt, sem gleður augað og minnir á jólahátíðina og er líka margt sem er á góðu verði. Enda Berlín þekkt fyrir það að vera ódýr borg. Í öllum tónlistarhúsum borgarinnar eru jólatónleikar og þar er svo sannarlega eitthvað fyrir alla.
Gist á mjög góðu og vinsælu 4* hóteli á besta stað í borginni Alexanderplatz, en þar á torginu er jólamarkaður, fyrir nú utan að aðalverslunarmiðstöð Berlínar er rétt við hótelið.
Boðið er upp á skoðunarferð með áætlunarbíl á laugardeginum í 4 klukkustundir. Þetta er ferð sem enginn má missa af. Þarna er sögu Berlínar gerð góð skil bæði í nútíð og þátíð, sem og allt það markverðasta ´skoðað í borginni.
Sameiginlegt jólaborð hefst svo kl. 19:00 í veitingahúsinu Sachs, þar sem einkennandi þýskur jólamatur er á boðstólum. Mjög spennandi. Verð 45 evrur á mann
Síðan er gönguferð á sunnudag og hefst hún kl. 11:00 og þá er m.a. farið á 2-3 jólamarkaði og sagt frá sögu og tilurð þessara jólamarkaða, en Þýskaland er eitthvert mesta jólaland í heimi þar sem aldagömul hefð er fyrir jólamörkuðum.
Mánudagur 28. nóvember. Frjáls dagur til að líta í verslanir og ath með jólainnkaup á því góða verðlagi sem Berlín státar af.
Brottför kl. 18:00 frá hóteli og út á flugvöll. Brottför flugs er kl. 20:30.
Verð á mann í tvíbýli: 79.900
Innifalið í verði Flug með sköttum, gisting á 4* hoteli með morgunverði, gönguferð og íslensk fararstjórn.
Hótel: Park Inn
Aukagjald fyrir einbýli 19.700
Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Myndir