Ischgl er einn vinsælasti skíðastaður Evrópu. Þar eru brekkur og svæði sem henta öllum, nákvæmlega sama hver getan er. Fyrir nú utan að Ischgl er líka einn skemmtilegasti og fjörugasti staðurinn í Ölpunum. Þar er ógrynni hinna vinsælu “Apré – veitingastaða” þangað sem þreyttir skiðaiðkendur koma að loknum degi, fá sér hressingu og syngja og skemmta ser. Til Ischgl koma á hverju ári heimsfrægir skemmtikraftar og halda tónleika einhvers staðar á skíðasvæðinu. Þar má t.d. nefna Diana Ross, Bon Jovi, Rod Stewart svo einhverjir séu nefndir. Skíðasvæðið er ótrúlega víðfemt og fjölbreytileikinn ótrúlegur. Menn skíða yfir til Sviss eins og ekkert sé og möguleikarnir eru óþrjótandi. Þar er líka alltaf nægur snjór, því svæðið er svo hátt yfir sjávarmáli. Expressferðir bjóða upp á dvöl á þessum vinsæla stað. 29. janúar til 5. febrúar, 19. - 26. febrúar og 26. febrúar til 5. mars. Hotel Persura www.persura.at Hótelið er mjög vel staðsett og menn skíða heim að hóteldyrum að loknum góðum skíðadegi. Aðallyfta bæjarins er í örstuttu göngufæri frá hótelinu. Á hótelinu er gufubað, sólbekkir, hvíldarherbergi, pottur og á herbergjum er ísskápur og þau eru björt, rúmgóð og vel útbúin, yfirleitt með svölum og baðkari. Við hjá Expressferðum erum með allar nánari upplýsingar sem farþegann vanhagar um. Verð á mann í tvíbýli kr. 198.300.- Aukagjald vegna einbýlis kr. 64.700.- Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7 nætur með morgunverði og 4 réttaður kvöldverður. Aukagjald vegna einbýlis 64.700. Skíðapassi kostar 178 evrur og 168 evrur fyrir 60 ára og eldri. Flogið til Friedrichshafen kl. 14:50 alla laugardaga og frá Friedrichshafen kl. 20:50 til Keflavíkur.